Hugaðu að heilsunni á nýju ári
Heilsuvörur
Glúteinlaust
Prótein
Tilboð í janúar á völdum vörum
Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir 2.900 kr. eða meira

Vefverslun
Sendingakostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 2.900 kr. eða meira.
Ef verslað er fyrir minna en 2.900 kr er sendingakostnaður 990 kr. fyrir sendingar um allt land.
Ertu með fyrirtæki? Sendu þá pöntun á info@raritet.is
Functional Nutrition
Functional Nutrition eru hágæða dönsk fæðubótarefni. Sérstök áhersla er lögð á gagnsæi og áreiðanleika í innihaldslýsingum og eru allar vörurnar prófaðar hjá utanaðkomandi rannsóknarstofum. Functional Nutrition vörurnar eru bragðgóðar án þess að slegið sé af kröfum um gæði og í vörurnar eru einungis notuð hágæða innihaldsefni. Mikil og öflug vöruþróun fer fram hjá fyrirtækinu og því alltaf von á spennandi nýjungum. Functional Nutrition vörunar henta jafn vel fyrir atvinnuíþróttafólk og þá sem stunda heilbrigðan lífsstíl og vilja bragðgóða viðbót við holla fæðu.






Chias
Chia fræ eru súperfæða sem innihalda mikið magn af næringarefnum, trefjum, omega fitusýrum, próteini, steinefnum og vítamínum. Chias hefur útbúið hollan chiadrykk í þægilegum umhverfisvænum umbúðum til að njóta í dagsins önn.


Swedish Protein Deli - KETÓ -
Swedish Protein Deli prótein kexið frá sænska framleiðandanum Fjällbergets Bageri & Deli er 100% náttúrulegt með mjög háu prótein innihaldi. Það inniheldur ekki korn, glútein, soya eða pálmaolíu og er án viðbætts sykurs. Kexið er tilvalið með hollri ídýfu, hummus eða öðru áleggi eða bara eitt og sér sem snarl. Frábær, náttúruleg prótein bomba fyrir íþróttafólk eða sem hollur valkostur við tilbúið snakk.
Box to Bake
Box to Bake er dönsk snilld sem gerir þér kleift að bjóða alltaf upp á nýbakað brauð án alls vesenisins sem því fylgir. Öll hráefnin sem þarf eru í kassanum, þú bætir bara við vatni, hristir og bakar í ofni í kassanum. Kassinn fer svo í endurvinnslu með öðrum pappa. Einungis eru notuð hágæða innihaldsefni í brauðin og þau eru annað hvort lífræn eða glúteinlaus.
Adapt
Swedish Herbal Institute hefur undanfarin rúm 30 ár rannsakað virkni svokallaðra Adaptogena og framleitt einstakar vörur með klínískri virkni. Adapt Energy Boost er klínískt rannsökuð vara með skjalfesta virkni og hefur verið seld víða í heiminum í áratugi. SHI hefur fengið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir vörur sínar. Fyrirtækið er eitt það virtasta í rannsóknum á adaptógenum. Jurtir sem tilheyra adaptógenum eru t.d. Burnirót, Makka, Ashwaganda og Ginseng.
Vilmas
Vilmas er sælkera súrdeigs hrökkkex frá sænska framleiðandanum Fjällbergets Bageri & Deli. Kexið er lífrænt og glúteinlaust og inniheldur einungis hágæða innihaldsefni. Fjällbergets Bageri & Deli er vottuð hveiti- og glúteinlaus framleiðsla og er allt framleitt á staðnum. Kexið er frábært með ostum, allskonar áleggi, með mat eða bara eitt og sér.
Veganz
Veganz framleiðir fjölbreytt úrval af hágæða vegan vörum. Veganz er umhugað um umhverfið og fyrirtækið leggur mikla áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif af framleiðslu sinna vara. Flestar vörur Veganz eru framleiddar í Evrópu og 75% þeirra eru vottaðar lífrænar. Umbúðir eru umhverfisvænar eða endurunnar. Í samstarfi við Eaternity Institute hefur Veganz reiknað umhverfisáhrif framleiðslu sinnar og birtir á umbúðum hverrar vöru. Kynntu þér allt um umhverfisútreikninga Veganz hér.
Lakritsfabriken
Lakritsfabriken framleiðir fyrsta flokks lakkrís úr hágæða hráefnum. Vörurnar innihalda mikið magn lakkríss og eru alltaf glútein- og gelatín lausar. Hverjum kassa er handpakkað í fallegar umbúðir.